Auglýst hefur verið hjá Ríkiskaupum, útboð á utanhússviðgerðum á húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8. Einangrun og klæðning á veggjum og þaki verður endurnýjuð og skipt um alla glugga. Gert er ráð fyrir að verkið hefjist upp úr áramótum en verklok eru 30. september 2014.  Sjá nánar: http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15565