Í dag voru Búðarhálslína og tengivirkið að Búðarhálsi tekin í notkun við hátíðlega athöfn. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets fluttu ávörp og fram fór fróðleg kynning á uppbyggingu raforkuflutningskerfisins.